5.7.06

Sumarbústaðarferð, blóðmaurar og íssssssss

Síðustu helgi fórum við í ferðalag. Hanna og Axel buðu okkur með í sumarhús sem fjölskylda Axels á í Skerjagarðinum. Húsið er á Djurö sem er í um klukkutíma fjarlægð frá okkur. Gummi var pínu á því að hann þyrfti nú að vera í bænum til að horfa á fótboltann en mér tókst að sannfæra hann um að koma með þar sem að hann hélt að það væri nothæft sjónvarp í sveitinni. Þegar á staðinn var komið gleymdist eiginlega bara fótboltinn. Skerjagarðurinn hér við Stokkhólm er náttúrulega bara með flottari stöðum sem finnast, sérstaklega þegar það er 25 stiga hiti og næstum logn. Húsið sem við gistum í er alveg við vatnið og rétt hjá er lítil vík með bryggju þar sem þau höfðu lítinn bát og svo var hægt að baða þar. Fyrir utan húsið var lítill pallur með borði og stólum og þar gátum við borðað hádegismat, kvöldmat og morgunmat.



Ragnhildi fannst ekki leiðinlegt að komast úr borginni. Verst var að hún fékk einhver leiðinda útbrot og fékk því ekki að baða eins og við hin. Hún fékk nú samt að dýfa táslunum aðeins ofaní vatnið. Mikið hefur verið gert úr því í öllum blöðum að fólk verði nú að bólusetja sig gegn sjúkdómum sem fästingar geta smitað mann af. Fästingar munu kallast blóðmaurar á íslensku og vorum við Guðmundur frekar smeyk við þessi kvikindi. Við vorum meira að segja svo smeik að þegar eitt slíkt kvikindi gerði sig líklegt til að bragða á dóttur okkar þá leið næstum því yfir undirritaða og ég ýki ekki. Sem betur fer var nú Axel snöggur að ná í flísatöng og plokka ódýrið í burtu og ég náði nú að jafna mig eftir áfallið. Eftir helgina þá höfðum við reyndar öll fengið á okkur fästinga nema Gummi en í staðinn tók hann við öllum sjarma sænsks sumars fyrir okkur, þ.e.a.s hann var bitinn um það bil 83 sinnum af stórum mýflugum. Ég hef nú komist að því að það er nú ekki svo nauðsynlegt að hræðast þessa litlu litlu maura en hef ákveðið að ef ég ætla aftur í svona ferð þá verður öll famelían bólusett fyrst!


Eftir að hafa baðað svoltið þá þurfti aðeins að svala þorstanum. Það var því brugðið á það ráð að sigla bara á næsta bar. Við sigldum til Bullandö marina. Ragnhildi fannst ekki svo gaman þegar pabbi hennar fékk að stýra þar sem að hann silgdi svo hægt. Hún tuðaði og tuðaði þar til hann gaf aðeins í og þá sat hún alveg kjurr og hló. Sem við sátum á bryggjunni og sötruðum öl og sleiktum sólina þá komst ég að því að ég ætla að eiga stóran bát þegar ég verð stór!












Ég hef loksins byrjað á að setja inn júnímyndir. Fyrstu umferð má sá hér. Við tókum svo óhugnarlega mikið af myndum í júní að það er bara ekki hægt að setja þær í eina möppu. Ég gerði því eina með heimsókn ma&pa og Ingvars og mun svo kannski jafnvel gera nýja möppu við eitthvað gott tækifæri, kannski á laugardaginn þar sem veðurfræðingarnir spá þrumuveðri.




Skemmtilegt að segja frá því að þá hefur Ragnhildur lært að segja nokkuð nothæft orð í sumarhitanum. Hún kann að segja íssssss og segir það nokkuð oft. Einnig reynir hún oft að opna frystinn og kallar þetta merkilega orð í leiðinni. Mér finnst hún ekki leggja eins ákveðna merkingu í orðið mamma en er engu að síður ógó stolt af nammigrísnum mínum

Skrifað 10:11 e.h. af Sveinbjörgu

template © elementopia | image © istockphoto
Weblog Commenting by HaloScan.com
Myndir
Bloggiblogg
Snúllur og Dúllur
Póstur
Gestakort og Grín
Gamalt