26.6.06

Midsommar

Þá sé midsommarhelgin liðin og við bara komin aftur í bæinn. Við fórum með Jóni og Betu til frænda hennar og fjölskyldu sem býr á sveitabæ við Arboga (sem er um 150 km vestur frá Stokkhólmi). Beta var fyrir löngu búin að stinga uppá því að við kíktum í heimsókn og létum við því loksins af því verða núna.
Við vorum nú eitthvað ekki alveg að fatta að Svensonarnir halda uppá Midsommar svipað og Íslendingar halda uppá jólin, 17. júní og verslunarmannahelgina til samans og við komumst heldur ekki að því að aðal hátíðarhöldin eru á föstudeginum fyrr en á föstudagskvöldinu sem kallast víst midsommarafton. Við mættum því ekki á svæðið fyrr en seinni part föstudags og mistum því af því að dansa í kringum stöng. Svo var Jenný (kona Grétars frænda Betu) búin að standa í ströngu ásamt mömmu sinni og undirbúa þvílíka hlaðborðið með síld og nýjum kartöflum, kartöflusalati, skinku og rækjugummsi, sem er víst allt ekta midsommar matur og svo er drukkinn snaps og sungnar drykkjuvísur. Það sem eftir var af helginni var svo étið, sólað og haft það huggulegt í ótrúlega krúttlega garðinum sem er í kringum húsið þeirra.

Aldrei hafa verið sýndir eins flottir kubb taktar


Ragnhildur og Hildur

Ragnhildur fílaði alveg í botn að fá að vera úti alla daginn að stússa við ýmsustu verkefni, eins og til dæmis að moka steinum í fötu og svo úr henni aftur, skríða á grasinu (ég held að hún hafi verið að herma eftir Hildi, 10 mánaða heimasætunni á bænum) og synda í mölinni (hreinlegt!) og svo var hún nú svoltið að reyna að kasta bolta til sveitakisans. Kötturinn, sem er 17 ára og líkist meira gaupu vegna fáránlegrar stærðar, kunni kannski ekki svo mikið að meta boltatilburði dömunnar en fannst agalega gott þegar hún reyndi að gera aaaaaahhh.



Á næstu dögum er svo stefnt á að jafna sig eftir ferðalagið og svo er aldrei að vita nema við förum í einhvern nýjan leiðangur um helgina.... annars þá er ég ekki búin að setja inn júní myndir, ég var því miður ekki í bænum þegar það ringdi :) en það gerist vonandi fyrir mánaðarmótin.

Skrifað 8:57 e.h. af Sveinbjörgu

17.6.06

Blogg!

Nú hef ég ákveðið að blogga. Fólki finnst eitthvað langt síðan ég skrifaði eitthvað á þessa síðu. Sambýlismaðurinn hefur nú verið fremstur í flokki kvartara sem er kannski pínu einkennilegt þar sem að við erum saman allan daginn alla daga þessa dagana þannig að hann hefur kannski ekki mikið við fréttir frá Kungshamra að gera...
Mikið og margt hefur gerst síðan ég skrifaði síðast. Ég kláraði síðustu kúrsana mína, Gummi og Ragnhildur skutust til Íslands í útskriftarveislur, ma&pa og Ingvar frændi komu með góða veðrið til okkar og skildu það svo eftir. Ragnhildur fékk í síðbúna afmælisgjöf frá ömmu og afa þetta rosa fína þríhjól sem hún þrífst agalega vel á. Hún á það til að klifra sjálf uppí hjólið þegar hún vill út og svo virðist svaka þægilegt að sitja á því þar sem hún sofnaði sitjandi á leiðinni heim úr búðinni í hádeginu í gær.
Í gær átti sá merkilegi atburður sér stað að uppþvottavélin var vígð. Fyrsti þvottur kom bara ansi hreint vel út og sér Gummi nú fyrir sér að hann muni hafa meiri tíma til að horfa á heimsmeistaramótið í fótbolta. Eftir að hafa dáðst að fallegu maskínunni okkar skelltum við okkur í innfluttningspartí til Kollu og Andra. Við fórum nú reyndar voða stutt inn í nýju íbúðina og fórum eiginlega bara beint á ströndina sem er rétt hjá þeim. Ragnhildi fannst ströndin æði. Hún vildi eiginlega ekki koma uppúr vatninu né hætta að róta í sandinum. Hún kom ekki hrein heim.
Við stungum síðan af fljótlega eftir að grillveisluparti partýsins lauk þar sem prinsessan var orðin svoltið þreytt. Við löbbuðum heim meðfram vatninu í frábæra veðrinu og framhjá öllum fínu snekkjunum sem Stokkhólmarar virðast eiga. Eins og sjá má á myndinni hér fyrir neðan var ungfrúin orðin svoltið þreytt og sofnaði örfáum skrefum síðar.

Ég get glatt lesendur með þeim upplýsingum að maí myndum hefur loksins verið halað inn á síðu prinsessunnar en júní myndirnar koma inn við eitthvað gott tækifæri.... kannski þegar það byrjar að rigna

Skrifað 12:35 e.h. af Sveinbjörgu

template © elementopia | image © istockphoto
Weblog Commenting by HaloScan.com
Myndir
Bloggiblogg
Snúllur og Dúllur
Póstur
Gestakort og Grín
Gamalt